16.11.2007 | 22:59
Ómerkilegt en nauðsynlegt!
Já, það er skítatrix að tengja auglýsingu við fréttir en ég gerði það samt.
Miðvikudagskvöldið 21. nóvember klukkan 20:00 mun Svanur Sigurbjörnsson læknir halda fyrirlesturinn Vísindi og nýöld bólusetningar eða blómadropa í Öskju, náttúrufræðahúsi HÍ.
Í fyrirlestrinum mun hann fjalla um um bólusetningar og áhrif þeirra. Þá mun hann sérstaklega taka fyrir þá gagnrýni sem fram hefur komið á bólusetningar og tengsl þeirra við alvarlega kvilla, svo sem einhverfu. Áætlaður tími eru 25-30 mín en að honum loknum verður fyrirspurnatími.
Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Res Extensa, félags um hug, heila og hátterni (www.resextensa.org).
Fyrirlesturinn fer fram í fyrirlestrarsalnum (stofu 132) í Öskju, náttúrufræðahúsi HÍ, og hefst kl. 20:00, miðvikudaginn 21. nóvember. Allir velkomnir.
Níu smituðust af E. coli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.